Súkkulaðidraumur
Hráefni:
200g 70% súkkulaði
200g smjör
4 stk egg
2dl sykur
2 og 1/2dl hveiti
1tsk lyftiduft
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 225°c á undir og yfirhita.
2. Bræðið súkkulaði og smjör í potti en gætið þess að blandan hitni ekki um of.
3. Hræðið egg og sykur saman í hrærivél, blandið súkkulaðiblöndu saman við á meðan er hrært.
4. Bætið hveiti og lyftidufti varlega út í með sleif.
5. Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri eða olíu og hellið deiginu ofan í mótið.
6. Setjið í ofninn í 10 - 15 mínútur.
Ummæli
Skrifa ummæli