Subway Kökur
HITIÐ OFNINN Í 180°C
Uppskrift (gerir 20-22 kökur)
(1 bolli eru 1 dl)
115 gr smjör (við stofuhita)
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
2 tsk vanilluextract (eða vanilludropar)
3 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 bollar súkkulaðibitar
Aðferð
-Þeytið saman sykurinn og smjörið í handþeytara og bætið þarnæst eggjunum saman við einu og einu i einu auk vanilluextracts.
-Setjið þurrefnin saman við, fyrir utan súkkulaðið og blandið vel saman. Hægt er að gera þetta í handþeytaranum eða með sleif.
-Blandið súkkulaðinu saman við með sleif.
-Rúllið deiginu með höndunum og mótið kúlur á stærð við golfkúlur og raðið 12 saman á plötu, sem er ósmurð með bökunarpappír.
-Bakið við 180°C í 10-12 mín eða þar til þær eru búnar að fletjast vel út og orðnar brúnar í könntunum.
-Bætið súkkulaði ofan á eftir að deigið er komið á plötuna
-Látið kólna aðeins og borðið með ííískaldri mjólk. :)
Heimild: Ragna.is
Kúl
SvaraEyðaJebbsí pepsí
EyðaIkr
SvaraEyða